fimmtudagur, apríl 03, 2008


fimmtudagur, mars 27, 2008

föstudagur, mars 14, 2008

Efecto triple

Hilaríus Helgason gekk niður Hverfisgötuna með frændum sínum, þríburastrákunum Huguinho, Zezinho og Luisinho. Þeir mátuðu skó í Bónusskóm, létu dekra við sig á fótaaðgerðastofu og spiluðu snóker á Sportbarnum. Litlu drengirnir nutu samverustundanna með Hilaríusi frænda sínum. Hann var þeim fyrirmynd og góður vinur. Faðir þeirra, tannsmíðameistarinn Esekíel Straumfjörð, hafði látið lífið í veiðiferð fyrir nokkrum árum og mátti heita að Hilaríus hefði gengið þeim í föðurstað. Móðir drengjanna, Alice Straumfjörð var brasilísk en hafði búið á Íslandi í marga áratugi. Hún starfaði í plastbransanum.

Nú komu þeir að Lýðveldisgarðinum á horni Hverfisgötu og Smiðjustígs og tylltu sér á ljósan viðarbekkinn. Hilaríus naut þess að segja litlu frændum sínum gamansögur og það var í miðri slíkri sögustund þegar þrefaldur atburður gerðist í einni hendingu. Síminn hans Huguinho hringdi en það var enginn á línunni, skítur úr hettumáfi lenti á hausnum hans Zezinhos og Luisinho fann gljáandi hundraðkrónu pening undir bekknum.

Þetta var hin vandræðalegasta stund, ekki síst fyrir Hilaríus sem reyndi nú að stilla drengina, sem ýmist voru farnir að háskæla, skellihlæja eða yppa öxlum. Hann brá því á það ráð að kaupa handa þeim ís í ísbúðinni Hómerís og lofaði að þeir fengju að horfa á teiknimyndir þá um kvöldið. Síðan röltu þeir rólega vestur í bæ.

miðvikudagur, febrúar 27, 2008

föstudagur, febrúar 15, 2008

Hart

A left handed, vegetarian, homosexual bastard, Leonardo da Vinci (1452-1519) contravened most of the accepted norms of his day.

þriðjudagur, janúar 29, 2008

Hann hafði alltaf óskað sér þess að hann héti Özur

Þegar hann keyrði Nýbýlaveginn helltust yfir hann minningarnar frá Sovétríkjunum. Eftir að hann hafði gengið í gegnum lengingaraðgerðina fékk hann að fara í skoðunarferð um Kólaskagann. Honum var fylgt að borholunni sem er í 10 kílómetra fjarlægð frá miðbæ Zapolyarny. Þegar hann horfði ofan í ginnungagapið fannst honum hann sjá í botni holunnar andlit krakkanna sem höfðu strítt honum í barnaskóla. Nú hafði hann losað sig við dvergvöxtinn og leið eins og miklu stærri og meiri manni en leiðinlegu krakkarnir.

mánudagur, janúar 21, 2008

Villikettir á Kergelen-eyjum

Hann vissi ekki hvort nýi kokkurinn var fídjeyskur, bissáskur, ganverskur eða hongkongskur en það var alveg á hreinu að hann var hvorki kasaskur né katarskur og enn síður kíríbatískur. Honum var brugðið þegar hann sá allskyns póstkort upp á vegg í mötuneytinu - frá Blúmfontein, Jeddu og Helsingfors. Á boðstólum var hondúrskur sjóbirtingur borinn fram með alsírsku salati frá Algeirsborg. Hann las um villiketti á Kergelen-eyjum á meðan hann borðaði.

sunnudagur, janúar 13, 2008

veni porque ya estamos cocinando las milanesas

Hann sat í djúpum leðurskrifstofustólnum með hlý heyrnartólin á eyrunum. Þetta var í norðurhluta Argentínu og hann gisti einn í herbergi í gömlu nýlenduhúsi þar sem kolíbrífuglar sveimuðu fyrir utan. Hann tvísmellti og var þá kominn inn í leikinn Sniper Elite. Hann var leyniskytta í orrustunni við Berlín árið 1945 og skaut höfuð af andstæðingum sínum með hárfínu miði riffilsins. Svarthærðir sessunautar hans á tölvukaffinu voru niðursokknir í tölvuleiki og með bláan glampa yfir andlitum. Hann var þarna staddur einn en það var aðeins tíu mínútna gangur aftur heim í nýlenduhúsið. Þegar hann hafði klárað fyrsta borðið í leyniskyttuleiknum hringdi grái gemsinn hans og hristist allur í vasanum. Honum var sagt að koma heim því það væri verið að leggja á borð. Hann gekk niður breiðgötuna sem var kennd við nítjándu aldar forsetann Domingo Sarmiento sem allir höfðu löngu gleymt og vissu engin deili á. Við allar götur uxu appelsínutré og hann stökk hálfa hæð sína og greip appelsínu. Þegar hann hafði gengið niður fjórar húsalengjur mætti hann hópi manna í jogginggöllum og með derhúfur sem héldu handjárnuðum manni og drógu með sér. Hann ályktaði sem svo að þarna væru leynilögreglumenn að störfum. Þeir hurfu strax á braut á stóra sendibílnum. Þegar hann barði að dyrum sá hann ljótan hund ofar í götunni nálgast sig. Hann vonaði að sér yrði hleypt inn áður en hundurinn næði til sín.

fimmtudagur, janúar 10, 2008

a railroad runs through the record stores at night coming in for the deep freeze

Prófarkalesarinn Freyja var í fríi og las gamlar sjónvarpshandbækur í þægilegum sófanum í íbúðinni á Teigunum. Hún las yfir slúðurdálkana sem leyndust innan um dagskrá ríkissjónvarpsins og stöðvar tvö. Merkilegast þótti henni að Björk okkar Guðmundsdóttir hefði á þessum tíma verið að hitta raftónlistarmanninn Goldie Hawn.

mánudagur, júlí 30, 2007



miðvikudagur, júlí 11, 2007

Vorar í Buenos Aires

Á þjóðhátíðardeginum 9. júlí, snjóaði í fyrsta sinn síðan árið 1918 hér í borg. En í dag skín sólin hátt á lofti og færir bros yfir andlit borgarbúa og geislar sig í Plötufljóti. Það lifnar jafnvel við Graf Spee sem liggur sundurskotinn í ármynninu.

Og það eru bjartir tímar framundan. El día de la primavera, eða dagur vorsins, verður þann 21. september. Þá verður gráupplagt að skella sér með matebrúsa og góða vini til Palermóskóga þar sem þúsundir borgarbúa munu fagna vorinu.

fimmtudagur, júlí 05, 2007

Steinkalt alveg

Sagði maðurinn um Aconcaguafjall sem kom til hans í draumi.

sunnudagur, júní 24, 2007

Comparisons/Observations

fimmtudagur, júní 21, 2007

Vamo' Xeneizes